25.10.2008 | 18:02
Af fundi foreldradeildar Blindrafélagsins
Í dag, laugardaginn 25 október, var haldinn fundur í foreldradeild Blindrafélagsins. Ágætis mæting var á fundinn. Á fundinum var gerð grein fyrir þeirri vinnu sem nú er í gangi við að byggja upp þjónustu við blind og sjónskert börn auk þess sem foreldrar skýrðu frá þeim samskiptum sem þeir hafa verið í til að tryggja hagsmuni barna sinna í skólunum. Þór Þórarinsson frá Félagsmálaráðuneytinu og Hrönn Pétursdóttur verkefnastjóri (fyrir nýja Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda sjónskerta og daufblinda) mættu á fundinn og töldu þau bæði að fundurinn og frásagnir foreldra hefðu verið mjög gagnlegar og myndu nýtast í þeirri vinnu sem framundan er við skipulagningu í þessum málaflokki.
Á fundinum kom m.a. fram að mjög brýnt væri að sveitarfélögin féllust á að samræmt verklag yrði tekið upp við mat á þörfum blindra og sjónskertra barna, sem gerði ráð fyrir aðkomu foreldra og fagaðila. Slíkar hugmyndir hafa verið lagðar fram og er mikilvægt að þeim verði fylgt eftir og að útkoman verði ásættanleg fyrri alla aðila.
Dæmi hafa verið nefnd um að sveitarfélög telji sig geta staðið í vegi fyrir því að mat kennsluráðgjafa á þörfum blinds eða sjónskerts barns sé látið foreldrum barnsins í té milliliðalaust. Á fundinum kom fram að líklega stangast þetta á við upplýsingalög og mun Blindrafélagið leita eftir formlegri staðfestingu á því frá Umboðsmanni barna.
Foreldrar nefndu einnig að við ákveðnar aðstæður væri þeim mikilvægt að geta leitað til einhvers réttargæsluaðila, sem gæti verið þeim stoð og styrkur ef upp kæmu deilur um hagsmuni barna. Innan Blindrafélagsins mun verða skoðað hvort félagið geti ekki veitt þennan stuðning.
Í frásögnum foreldra komu fram dæmi um frábæra þjónustu og vilja skóla til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma til móts við skilgreindar þarfir blindra og sjónskertra barna. Eins komu fram dæmi um hið gagnstæða, eins og ég skrifaði um í þessum pistli sem má lesa hér. Eins og það er mikilvægt að gera grein fyrir því sem aflaga fer þá er jafn mikilvægt að gera grein fyrir því sem vel er gert og stefni ég að því að segja sögu af frábærri frammistöðu skóla fljótlega.
Það verður aldrei ítrekað um of að það eru foreldrarnir sem gegna algjöru lykilhlutverki í hagsmunagæslu fyrir börnin sín, hvort sem þau eru fötluð eða ófötluð. Það er hinsvegar oft hlutskipti foreldra fatlaðra barna, sem standa í framlínu þessara baráttu, að fá á sig stimpilinn "erfitt foreldri" meðal kennara og skólastjórnenda sem ekki hafa skilning á þeim þörfum sem þarf að mæta til að öll börn sitji við sama borð í í námi og leik.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 16:25 | Facebook
Athugasemdir
það var virkilega gaman að geta komið á þennan fund, takk kærlega fyrir mig.
Eins var mjög gaman að heyra frásagnir af því sem vel gengur, og gott væri að fá það hér á síðuna líka eins og þú stefnir að, hlakka til þess. Kv Sigurlaug
(IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 19:00
Sæl Sigurlaug. Það var mjög gagnlegt og upplýsandi að fá þig á fundinn sem ég er viss um að var mjög gagnlegur.
Um leið og ég er búinn að fá leyfi frá þeim sem í hlut eiga mun ég birta frásögnina þar sem greint er frá þem frábæru viðbrögðum skóla sem við heyrðum af á fundinum. Gangi þér sem best í þerri baráttu sem þú stendur í og hafðu í huga að ef þú telur að félagið geti veitt þér einhverja aðstoð þá viljum við fá að vita af því.
Kristinn Halldór Einarsson, 25.10.2008 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.