Þakklætisvottur til starfsfólks Sjónstöðvar Íslands og Guðmundar Viggóssonar

Nú þegar samþykkt hafa verið lög um þjónustu og bekkingamiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, er ljóst að starfsemi Sjónstöðvar Íslands verður lögð niður og öll sú starfsemi sem þar hefur verið mun flytjast inn í nýja stofnun. Föstudaginn 19 desember, daginn eftir samþykkt laganna um þjónustu og þekkingarmiðstöðina, fóru ég og Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins, í húsakynni Sjónstöðvarinnar og færðum starfólki góðgæti, sem smá þakklætisvott fyrir það starf sem starfsfólkið hefur sinnt á starfsárum Sjónstöðvarinnar, um leið og fagnað var nýjum áfanga.

Mánudaginn 22 desember var haldið jóla kaffisamsæti að Hamrahlíð 17 fyrir starfsfólk og íbúa hússins. Við það tækifæri var að sjálfsögðu fagnað samþykkt laganna um Þjónustu og þekkingamiðstöðina. Í tilefni þess að Sjónstöðin er að hætta starfsemi, þá færði Blindrafélagið Guðmundi Viggóssyni, blómvönd og gjafabréf á veitingastað, fyrir hann og frúnna, sem smávægilegan þakklætisvott fyrir það ötula starf sem hann hefur innt af hendi sem yfirmaður Sjónstöðvar Ísland, allt frá því að stofnunin hóf starfsemi sína árið 1987.

Öllu starfsfólki Sjónstöðvar Íslands verður boðið starf á hinni nýju þjónustu og þekkingarmiðstöð og vonandi munu sem flestir sjá sér hag í að þiggja það.

CIMG0732 (2)

Myndin sýnir Guðmund veita viðurkenningunni viðtöku. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Haraldsson, Kristinn Halldór Einarsson og Guðmundur Viggósson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband