Heilbrigðisráðherra skipar starfshóp um notkun leiðsöguhunda á Íslandi

Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast mér að heilbrigðisráðherra hefði ákveðið, að tillögu Blindrafélagsins, að skipa starfshóp um notkun leiðsöguhunda á Íslandi, var ég ásamt fleirum skipaður í hópinn.

Verkefni hópsins er að kanna tilhögun við að gefa blindum og sjónskertum einstaklingum kost á að nýta sér leiðsöguhunda, kostnað því samfara og þróun þjónustunnar. Hópnum er ætlað að skila ráðherra áliti og tillögum fyrir 1.mars 2009.

Starfshópurinn er þannig skipaður að auk mín eru í honum: Eva Þengilsdóttir, sem er formaður, Friðgeir Jóhannesson leiðsöguhundanotandi, Guðbjörg Árnadóttir umferliskennari og Vigdís Hallgrímsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.

Þetta sýnist mér vera vel skipaður starfshópur.

Það er ástæða til að færa heilbrigðisráðherra þakkir fyrir að setja þetta brýna mál í þennan farveg, sem vonandi verður til að koma farsælli skipan á málefni leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.

Síðast liðið haust fengu 4 félagar í Blindrafélaginu afhenta leiðsöguhunda, sem komu frá norska leiðsöguhundaskólanum, en það var samstarfsverkefni Blindrafélagsins og Heilbrigðisráðuneytisins, dyggilega stutt af Lions hreifingunni á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband